Tenglar

Auglýsing

Stóri snillingurinn minn. ;D

30. nóvember 2007 klukkan 01:35
Fórum á tónleika hjá GEB og stelpunum sem eru í hennar hóp í söngskólanum og þær eru bara snillingar þessar stelpur, rosalega gaman að hlusta á þær.
GEB er yngst í hópnum, alveg heilu skólaári yngri en hinar.

Hér er afrekið hennar.

Stína og brúðan
http://www.ringo.com/photos/share/photo.html?photoId=245712268&id=HVer7a_Llqc0&origin=photoinvite

Vertu hjá mér.
http://www.ringo.com/photos/share/photo.html?photoId=245716432&id=e9SNK1pOJfi0&origin=photoinvite

Svo tók Lára smá video af Þóru Örnu, henni fannst nefnilega svo gaman að allir skankar voru á hreifingu, Birta er unga söngkonan sem er að syngja undir í þessu myndbandi.  :)

http://www.ringo.com/photos/share/photo.html?photoId=245717023&id=aZlB8Gc1w410&origin=photoinvite

Vona að þið hafið jafn gaman af eins og mamman, sem er búin að hlusta endalaust á lögin.  :)
Rakel Þórisdóttir
1 athugasemd

Mundi allt í einu eftir því að ég ætti bloggsíðu. ;D;D

27. nóvember 2007 klukkan 00:17
Sagði ykkur það strax að ég væri nú ekki mikill bloggari. ;D


En allavega uppdeit á síðustu færsluna mína sem er svo langt síðan að ég skrifaði.
Þóra Arna er bara alveg sátt hvort okkar sem fer inn að sinna henni ef þess þarf, við náðum þessu, jibbý.
Við mæðgurnar vorum og erum búnar að vera smá lasnar, Þóra Arna er reyndar búin að jafna sig, það eru bara tönnslu mál í gangi hjá henni, nú fer að styttast í að tönnin brjótist í gegn, ég sé hana bara.
Guðbjörg Elsa var sárlasin í síðustu viku, fékk svo heiftarlega veirusýkingu í hálsinn að hún var bara með útbrot um allan háls af völdum þess.  Svo batnaði henni að við héldum en eitthvað er að, því hún er orðin lasin aftur, var heima í dag og verður heima á morgun allavega, samt ætla ég að skjótast með hana í söngskólann þar sem hún er að fara að syngja á tónleikum fyrir foreldrana. :)
Ég er svona annarslangið með í hálsinum og hósta geðveikt, sérstaklega á nóttunni, ekki gaman það. :D

Þóra Arna er komin á fullt skrið í göngugrindinni, nú þarf að fara að passa skvísuna og kaupa eitthvað öryggi á skápa og skúffur, hún er búin að fatta hvernig það er opnað. ;D
Hún er líka búin að velta sér, loksins fór hún af bakinu yfir á magann.
Veit samt ekki hvort að ég get sagt að hún geti líka velt sér af maganum yfir á bakið, en allavega í dag lá hún hérna í sófanum hjá mér og var eitthvað að tegja sig og velta sér á magan, nema hún var enn með aðra hendina undir sér og velti sér svo til baka aftur.  ;D
Allavega allt að gerast hjá henni núna, búin að vera voðalega róleg að sitja bara á rassinum en hún ætlar að sýna okkur hvað hún kann svo hún geti nú fiktað í jólaskrautinu þegar það verður sett upp. ;D

Annars gengur lífið bara sinn vanagang hérna, Bjöggi alltaf að vinna og ég alltaf að hugsa um stelpurnar okkar, Bjöggi er nú samt ágætlega duglegur þegar hann er heima.

Ég og Guðbjörg Elsa fórum í afmæli til Lindu (mákonu) en Bjöggi var bara heima með Þóru Örnu og áttum við öll flottan dag.

Jæja nenni ekki meiru, er hætt að sjá á skjáinn. ;D
Rakel Þórisdóttir
Engin athugasemd

Jæja. :)

25. október 2007 klukkan 23:26
Verð bara að segja ykkur smá.

Við Lovísa vorum að spjalla á msn í gærkveldi og var ákveðið að ég myndi koma í kaffi í dag, við Þóra Arna komum til hennar, Magneu og Tuma um 13:00 og fórum svo rúmlega 15:00 til að kaupa sokkabuxur og bol á Guðbjörgu fyrir kvöldið.  Alltaf voðalega notó að koma til Lovísu og við fengum með kaffinu hjá henni, hún var með saumó í gærkveldi og hellings afgang.  :)

Guðbjörg Elsa fór með kórnum sínum í kvöld og þau sungu fyrir Ingibjörgu Þorbergsdóttur sem varð 80 ára í dag, til lukku með það.
Allt gekk vel og stolt og ánægð stúlka kom heim eftir skemmtilega upplifun án foreldra sinna.

Á meðan ég var að spjalla við Lollu í gær, þá rumskaði litli púkinn minn og þurfti dudduna sína, boy ó boy, pabbi fór inn og setti duddu í munninn og mamma endaði inn í bílskúr hálf grátandi, því litli unginn fór bara að grenja og vildi mömmu sína, en pabbi sýndi engan bilbug á sér þannig að mömmu var nauðugur einn kostur að fara inn í bílskúr og sitja þar, því það er ómögulegt fyrir mömmur að hlusta á börnin sín gráta, þegar þær vita að það sem barnið vil eru þær.  
Jæja Bjöggi kom svo loksins inn í bílskúr og lét mig vita að litla skottið væri sofanað og við vorum bæði glöð og ánægð með að hvorugt okkar gafst upp og þá sérstaklega ég.  :)

Ég tók svo ákvörðun um að hann skildi vera sá sem setti hana inn í rúm í kvöld og ég kyssti og knúsaði góða nótt og lét mig svo hverfa inn í bílskúr til að setja í þvottavél, þurfti að fara inn aðeins og þá var hún að gráta og ég hljóp bara aftur inn í skúr, síðan kemur pabbinn að mér finnst allt of snemma og segir að hún sé löngu sofnuð. hehe, ekki kannski löngu en fyrir stuttu síðan.
Þóra Arna er nefnilega bara lögð inn í rúm þegar hún fer að sofa og svo fer hún bara að sofa, kannski þarf að fara inn 2-3 og gefa dudduna en svo er hún líka sofnuð.

Ógó stolt af minni að láta loksins verða af því að koma bóndanum inn í það að sinna henni á kvöldinn.  :D
Vona svo bara að hún verði ekki búin að gleyma því að pabbi kann líka að setja hana inn í rúm og rétta henni duddu, því hann er að fara á 3 nátta næturvakt.

Stefnan er tekin á að skreppa aftur í þessa Toy´s R us á laugardaginn, þarf að kanna hvort það sem ég er að spá í að pannta í jólagjöf handa Þóru Örnu sé ekki til hérna heima og þá kannski ódýrara.  :)  Kannski maður skelli sér þá líka smá stund í Smáralindina og skoði dótið í Hagkaup, það hlýtur að fara að koma samkeppni á milli.  ;)

Ég verð bíllaus á morgun og sennilega alveg fram á laugardagsmorgun, því bíllinn hjá Bjögga bilaði og ég get ekki verið þekkt fyrir annað en að lána honum minn bíl í fyrramálið og svo aftur á næturvaktina, hann er búin að húkka sér far núna síðustu 2 dagvaktir. ;D

Ég svo sem þarf ekkert að fara og allavega ágætis afsökun að hrista þá bara rykið af vagninum hennar Þóru og klæða sig vel ef ég þarf út í búð, enda kannski 5 mínútna labb þangað.



Leiðsögnin er svo hér eins og vanalegar, veit bara ekki hvað ég á að segja.

Nema ef að við erum glöð og ánægð þá er allt svo fallegt og gott í kringum okkur.
Rakel Þórisdóttir
3 athugasemdir

Fór í Toyrus í dag. ;D

21. október 2007 klukkan 23:06
Guðbjörg Elsa er búin að bíða og bíða eftir því að við förum í þessa merkilegu nýju dótabúð sem allir tala um, þannig að loksins var ákveðið að fara í dag.
Það var sko margt um manninn og ég hafði nú orð á því að ég væri enn ekki að trúa því af hverju ég hefði látið tilleiðast að fara, en þarna vorum við komin og þá var náttúrulega bara að gera það besta úr hlutunum.
Bjöggi rölti með Guðbjörgu um búðina og ég fór að skoða smábarnadótið með Þóru Örnu og mamma og Ólöf Edda röltu saman, svo auðvita hittumst við af og til.
Vorum ca klukkutíma kannski aðeins lengur, ég fann náttúrulega fullt af dóti handa Þóru Örnu en keypti samt bara eina dúkku frá Lamaz sem er með svona einhverju dóti á og henni fannst hún mjög spennandi.
Guðbjörg fann ekkert handa sér, þó svo að hún mætti velja sér eitthvað innan skinsamlegra marka þá var ekkert sem hana langaði sérstaklega í.
Ólöf fann teppið sem hún var að leita af handa litlu ófæddu dúllunni sinni og keypti það og mamma keypti nokkrar jólagjafir.

Bjöggi fékk símtal á meðan við vorum inn í búðinni og hann beðin um að taka aukavakt í nótt sem hann gerði og í framhaldinu var ákveðið að fá sér bara að borða á leiðinni heim, við fórum bara yfir planið á Mac donalds, ekki besti staður í heimi fyrir mig en ég lét mig hafa það.

Alla kom svo með Ísól Hönnu og Jónatann Magnús og við áttum góða stund saman þar til hún þurfti að fara og sækja Anton Vigfús til vinar síns.

Við GEB böðuðum svo ÞAB og svo horfði GEB á Sjónvarpið áður en hún fór að sofa og nú sit ég hérna ein með hundinum og horfi á sjónvarpið og hangi í tölvunni á milli þess sem ég hendist inn í bílskúr til að ath með þvottavélina. ;D


Leiðsögn dagsins.
Gerðu það besta úr því sem þú hefur og vertu sátt með það.
Rakel Þórisdóttir
1 athugasemd

Gaman í dag. :D

15. október 2007 klukkan 22:46
Jæja þetta er annað hvort í ökla eða eyra hjá mér. ;D


Við mákonurnar ég og Lovísa brugðum okkur á bæ í dag, ég og Þóra Arna og hún og krakkarnir.
Við fórum í Babysam og skoðuðum bílstóla fyrir börnin okkar, en ákváðum að bíða aðeins með að kaupa þá.
Ég gat samt ekki stillt mig og keypti baðdót handa Þóru og hún fór í bað áðan og skemmti sér konunglega með nýja dótið, sem er kolkrabbi og eitthvað dót á honum og hann flýtur og bara frábært að fylgjast með henni leika við dótið.
Guðbjörg Elsa var að fara á sundæfingu í dag þannig að hún gat ekki farið með okkur í þessa bæjarferð, en við verðum bara að endurtaka það núna aftur fljótlega svo GEB geti farið með. :D
Mata pata var að sjálfsögðu til fyrirmyndar stillt í þessu búðarrápi og litlu börnin voru eins og englar, held bara að ÞAB hafi ekki sofið svona vel að degi til í langan tíma.
Við fórum sem sagt í Kringluna líka, ég "þurfti" að fara í Next og fá föt á Þóru.  LOL
Voða flott. ;D
Magnea var orðin svo svöng þegar við komum í kringluna að við ákváðum að byrja á því að fá okkur að snæða og ungarnir snæddu pela og fóru svo að sofa.

Takk fyrir daginn Lovísa, Magnea og Oliver Tumi. ;D  Voðalega gaman að fara svona með ykkur og þið með okkur. ;D

Eigið góða daga fram að næsta bloggi hjá mér og verið góð hvert við annað. ;D
Rakel Þórisdóttir
1 athugasemd

Ég gleymi alltaf þessu bloggi. :D

15. október 2007 klukkan 12:06

En allavega þá fóum við í mat til mömmu í gær, alveg æðislegan mat, jólinn vorum bara næstum komin.
Oliver og Lovísa og krakkarnir voru líka ásamt mér og minni fjölskyldu.
Við Lovísa ákváðum bara að gefa litlu börnunum okkar pela og láta þau bara sofna á leiðinni heim, Tumi er reyndar vanur, en ég hef aldrei gert þetta viljandi með Þóru, en það gekk, ég náði að fara með hana sofandi inn og upp í rúm, en svo gerðist það, hún vaknaði alveg á háa Cinu og leið eitthvað rosalega illa greinu litla.
Ég endaði á að taka hana fram og leyfa henni að horfa smá á sjónvarpið með mér, held að þetta séu helv**** AD droparnir eina ferðina enn og nú ákvað ég að ég ætla sko ekki að gefa henni þá í dag bara að sjá til hvernig hún verður við að sleppa þeim.

Hella og Gummi giftu sig á laugardaginn og Guðbjörg Elsa tók það að sér að syngja eitt lag fyrir þau og stóð sin frábærlega vel.  :)


Ef Láru tekst að ná myndbandinu til að það sé hægt að setja það á netið þá mun ég sýna ykkur það.

Rakel Þórisdóttir
Engin athugasemd

jæja Lára kvartar og kvartar.

10. október 2007 klukkan 22:57
Hvað er það með búddistann hana systur mína, hún bara kvartar og kvartar yfir því að ég bloggi ekki, ég er alltaf að segja henni að ég kunni ekki að blogga og hún bara hlær af mér og segir þú bloggar bara og þá ertu bloggari. ;D

En jæja ég get allavega sagt ykkur að ég fór í klippingu í dag, svo kom Lára við og hafði líka farið í klippngu og það var eins klipping að aftan og samt var þetta ekki sama klippi konan sem var að klippa. ;D

Þóra Arna mín er orðin 6 mánaða svaka skvísa, ég á víst að fara að gefa henni þessa "fokkings" AD dropa aftur og mig kvíður fyrir því, því þegar ég gaf henni þá síðast 6 og 9 vikna þá varð hún brjál í maganum.  :(
En ég verð að prufa aftur og þá geri ég það bara.

Guðbjörg Elsa mín er alltaf jafn góð og sæt stelpa, það gengur allt rosalega vel í kring um hana, skólinn, sundið og söngurinn, hún slær ekkert af þar.  :)
Hún er voðalega góð við litlu systur sína, sem skilar sér margfalt til baka í brosi og hlátri hjá litlu dúllunni.

Ég er að fara í veislu á Laugardaginn og mamma ætlar að koma og passa, þar sem Lára er upptekin við að þjóna í þessari veislu, segi ykkur betur frá því seinna því það á að gerast smá óvænt og ég vil ekki vera búin að kjafta frá fyrr en allt er afstaðið. ;D

Vona að þetta blogg gleðji stóru systur mína mikið. :D




Svo leiðsögn dagsins.

Finnið það góða innra með ykkur og þá líður ykkur og öllum vel í kring um ykkur. ;D;D
Rakel Þórisdóttir
3 athugasemdir

Jæja

28. september 2007 klukkan 22:50
Lára farin út úr bænum og Kristín komin til frænku sinnar, hún fékk að fara út og kom heim næstum því á réttum tíma, ekki alveg en það munaði 15 mín hjá mér en 8 mín hjá henni og við sjáum yfir það.  :)

Ég og GEB fórum í pottinn þegr ÞAB var sofnuð og vorum smá stund, til að reyna að lina bakverkina hjá mömmunni.
LIL er að spá í að fá kannski að gista hjá frænku sinni á morgun, því það er svo langt síðan hann hefur sofið hérna og svo er hann nú farin að verða langeygur eftir því að komast í pottinn.  :)

Við stelpurnar eru svo að horfa á mynd núna á skjábíó og borða popp og svo eiga þær að koma sér í rúmið, það er alveg eins hægt að vakna bara á morgun eins og að vaka fram á nótt og sofa svo til hádeigis.

svo leiðsögn morgundagsins.
Sjáðu það fallega í kringum þig og vertu sátt/ur við þig og þitt. :D
Rakel Þórisdóttir
2 athugasemdir

Helgin

28. september 2007 klukkan 10:50
Jæja nú er komin helgi og ég bíð bara eftir að GEB komi heim úr skólanum til að helgin byrji formlega hjá okkur hérna.
KM er að koma til að vera hjá Guðmóður sinni og GEB hlakkar mikið til, BSJ verður að vinna um helgina á næturvakt, þannig að hann nýtur ekki kvöldsins með okkur hérna heima.
Ég er að spá í að plata stelpurnar KM og GEB til að baka handa okkur pizzu og bjóða allavega ömmu G og LIL í mat, kannski koma ÞAJ og OET líka, hver veit.

Ég fór á foreldra fund í gær, ég sver það, að ég táraðist bara, kennarinn hennar GEB hefur nákvæmlega ekkert út á hana að setja, þvert þá móti, þá er hún svo ánægð með hana að ég varð bara snortin, held að ég sé pínu viðkvæm eftir að vera tvöföld mamma, því þetta er búin að vera saga GEB síðan hún byrjaði í skólanum.

ÞAB er alltaf að stækka, hún er svo góð við flesta, við verðum að gera tilraun með LÞ og láta hana taka gleraugun niður, því það er ekki eðlilegt hvernig barnið getur fegnið af sér að láta við hana, en við vinnum bara í því, því ekki er leyfilegt að láta illa við Guðmóður sína.
ÞAB dafnar vel og stækkar vel líka, er farin að sitja pínu stund alveg ein og segir mama og babba alveg þótt hún viti ekkert hvað hún er að segja. ;D;D


Svo leiðsögn dagsins.  :)

Elskið þið friðin og strjúkið kviðinn.  ;D;D
Rakel Þórisdóttir
1 athugasemd

Varð að prufa þar sem Lára systir er svo dugleg. :)

26. september 2007 klukkan 22:09
Ég skil nú ekki upp né niður í þessu bloggi, þannig að ég held að ég bíði bara með það að gerast bloggari.  ;D
Rakel Þórisdóttir
Engin athugasemd